A A A
  • 1992 - Hannes Pétur Einarsson
  • 1994 - Jón Þorri Jónsson
12.05.2016 - 10:36 | Vestfirska forlagið,bb.is

Lúxussnekkjan A í Dýrafirði

Lúxussnekkjan A í Dýrafirði. Ljósm.: Bernharður Guðmundsson.
Lúxussnekkjan A í Dýrafirði. Ljósm.: Bernharður Guðmundsson.
« 1 af 3 »
 Dýrafirði liggur við akkeri í morgunsárið, ein þekktasta snekkja í heimi, sem ber nafnið A. Ekki er vitað um nákvæma ferðaáætlun hennar, en snekkjan kom frá Akureyri þar sem hún var í um vikutíma. A er í eigu rússneska auðkýfingsins Andrey Melnichenko sem er 137. ríkasti maður í heimi samkvæmt lista Forbes. Ekki hefur heldur verið gefið upp hverjir sigla með snekkjunni um íslenska lögsögu, en er þó talið að þar sé á ferð eigandi hennar ásamt gestum. 

Snekkjan er 120 metrar að lengd og er hönnuður hennar enginn annar en Philippe Starck. Gistirými er fyrir fjórtán gesti í sjö svítum og vistaverur fyrir 37 áhafnarmeðlimi. Í henni eru þrjár sundlaugar, eða heitir pottar, þar er þyrlupallur og bátaskýli sem rúmar þrjá glæsilega léttabáta, en því má þó breyta í salarkynni til veisluhalda beri svo við. 

Hafi lesendur áhuga á að kaupa gripinn má gera það, en í frétt í viðskiptablaðinu er greint frá því að snekkjan sé til sölu á litla 36,6 milljarða króna. Ástæðan fyrir því að Melnichenko losar sig nú við fleyið er sú að hann lætur smíða fyrir sig aðra snekkju, sem einnig er hönnuð af Philippe Starck. Hún verður sjósett á næsta ári og er metin á 48,8 milljarða króna og er stærsta snekkja sem gerð hefur verið. 
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31