A A A
  • 1958 - Helga Sigurrós Bergsdóttir
  • 1976 - Gunnar Ragnar Hjartarson
  • 1993 - Karín Mist Kjerúlf
Simbahöllin á Þingeyri.
Simbahöllin á Þingeyri.
Á morgun, föstudagskvöldið 16. okt. 2015, verður mikið um dýrðir í Simbahöllinni á Þingeyri. Þá munu rithöfundurinn Júlía Margrét Einarsdóttir, ljóðskáldið Dagur Hjartarson og harmonikkuleikarinn Margrét Arnardóttir leiða saman hesta sína og bjóða til tónlistar- og upplestrarveislu. Júlía Margrét hefur gefið út safnrit með ljóðum og smásögum en er að leggja lokahönd á fyrsta skáldverkið sitt en hún hlaut styrk frá Hinu íslenska bókmenntafélagi til útgáfunnar. Dagur hefur bæði gefið út skáldsögur og ljóð og Margrét er harmonikkuleikkona á heimsmælikvarða ásamt því að hafa lagt stund á jóðl. 

"Við Margrét dveljum hérna hjá Wouter og Janne þessa vikuna og erum að semja og æfa harmonikkutónlist og vinna í skáldsögu. Foreldrar Dags eiga hús hér á Þingeyri svo hann kemur oft hingað - en það er hrein tilviljun að við séum hér á sama tíma núna", segir Júlía Margrét. Hún segir að viðburðurinn hafi ekki verið þaulskipulagður, heldur hafi röð tilviljana leitt til þessarar samkomu. "Við ákváðum í hvatvísi að nýta tækifærið og bjóða upp á eitthvað skemmtilegt fyrir bæjarbúa, nærsveitunga og þá sem hafa áhuga á að koma og gleðjast með okkur." 

Á tónlestrinum verður boðuð upp á bakkelsi, huggulega stemningu og létt spjall, ásamt hljóðum tóna og lesturs. Herlegheitin hefjast kl 20:00 
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31