A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
13.07.2015 - 15:10 | Hallgrímur Sveinsson

Listasalurinn Ísland og Ómar Þ. Ragnarsson

Ómar Ragnarsson.
Ómar Ragnarsson.

Tíu þúsund króna aðgangseyrir er lágmark!

Alltaf sér maður það betur og betur hvílík gersemi Ómar Þ. Ragnarsson er. Sannast það áþreifanlega af kvikmyndunum af Íslandi og Íslendingum sem hann er að sýna í Sjónvarpinu þessa dagana. Fáir ef nokkrir hafa gengið þá götu sem hann hefur troðið af mikilli einbeitni: Að reyna að vekja þjóðina til vitundar um það stórkostlega land sem hún byggir. Það er borðleggjandi að landið á sér enga hliðstæðu í víðri veröld. Og svo eru Íslendingar ekki síður sér á parti!

   Ábyrgð Íslendinga er mikil að varðveita þetta land okkar, sem við höfum að láni. Og það er mikil áhætta að hleypa útlendingum milljónum saman eftirlitslaust hér inn í okkar stóra og mikla listasal náttúrunnar. Við verðum að stýra þeim af festu ef ekki á illa að fara. Til þess þarf uppbyggingu af ýmsu tagi. Til að standa undir henni verða stjórnvöld að innheimta aðgangseyri að salnum. Tíu þúsund krónur á hvern einasta ferðamann sem kemur gagngert til að njóta landsins okkar er lágmark. Og þá upphæð munu all flestir erlendir feðalangar greiða með ánægju við komuna til landsins. Reikningsglöggir menn geta svo reiknað hvað kemur í kassann þegar þetta er komið í kring. Upphæðina má svo hækka ef þörf krefur.

Þessu er hér með komið á framfæri.    

 

Hallgrímur Sveinsson

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31