A A A
Yfirlit yfir vikulega framvindu
Yfirlit yfir vikulega framvindu
« 1 af 8 »

Í síðustu viku, viku 32, lengdust göngin um 84,4 m og lengd þeirra nú orðin 3.260,7 m sem er 61,5% af heildarlengd. Aðstæður til gangagraftrar hafa verið góðar og berggangur sem var að koma inn í göngin í lok vikunnar hafði ekki áhrif á framvindu en berggangurinn var kominn á miðjan stafn í lok vikunnar, sjá ljósmynd.

Lítillega hefur bæst við fyllingar í Arnarfirði en megnið af efninu úr göngum hefur farið í, auk fyllinga, fláafleyga og á haugsvæði. Þá var syðri stöpull nýrrar Mjólkárbrúar tilbúinn fyrir uppsteypu í lok vikunnar og verður hann steyptur í dag.

Í Dýrafirði vann verktaki að aðstöðusköpun og er plan fyrir svefnaðstöðu verktaka nú klárt og þá hóf verktaki vinnu í vegagerð á skeringarsvæði, sjá ljósmyndir. Einnig var unnið við styrkingar í forskeringu sem eru nú nánast lokið en eftir er að grafa burt síðasta hlutann úr forskeringunni og verður gangastafn væntanlega tilbúinn í næstu viku fyrir lokastyrkingar á munnsvæði áður en gangagröftur getur farið af stað í Dýrafirði.

« Apríl »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30