Leikskólanum færðar gjafir!
Þessa dagana eru slysavarnadeildir og björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar að færa öllum leikskólum landsins endurskinsvesti til að nota í vettvangsferðum 4-5 ára barna.
Kiddi kom til okkar í morgun færandi hendi og tók Elsa María leikskólastjóri við 6 vestum. Við á Laufási erum mjög þakklát gjöfinni enda erum við mikið á ferðinni allt árið í kring og það er mikilvægt að sjást vel. Kærar þakkir!
Um daginn komu svo kvenfélagskonur úr Kvenfélagi Vonar í heimsókn og færðu leikskólanum barnakerru sem tekur 4 börn, sem kemur sér mjög vel þar sem alltaf er verið að taka inn yngri börn og auðveldar öllum að geta tekið þátt í leikskólastarfinu þar sem vettvangsferðir er reglulegur þáttur í leik og starfi skólans.
Þetta er mjög góðar og nytsamlegar gjafir sem hjálpa okkur mikið.
Starfsfólk leikskólans langar að færa Slysavarnarfélaginu og Kvenfélaginu sem starfa á Þingeyri þakklæti fyrirhlýhug og gjafmildi í garð Laufáss.
Með bestu kveðju,
Elsa María Thompson
leikskólastjóri.