Kvöldvaka í Holti 15. janúar 2013 á afmælisdegi Guðmundar Inga Kristjánssonar
Eins
og mörg undanfarin ár mun Ingastofunefnd efna til kvöldvöku í Holti Friðarsetri
á afmælisdegi Guðmundar Inga í dag 15. janúar kl. 20.
Kvöldvakan
verður tileinkuð minningu Einars Odds Kristjánssonar. Þann 26. desember
síðastliðin voru liðin 70 ár frá fæðingu hans. Erindi heldur Aðalsteinn
Sigurgeirsson forstöðumaður á Mógilsá og mun það fjalla um skógræktarskilyrði á
Vestfjörðum fram eftir 21. öld. Þá mun Hjarðardalskvartettinn syngja en hann
skipa þeir bræður Jóhannes, Jón Jens, Steinþór og Hlynur Kristjánssynir. Einnig
munu Söngsystur syngja en það eru þær Dagný Arnalds, Rúna Esradóttir og
Arnheiður Steinþórsdóttir. Eiríkur Finnur Greipsson mun minnast Einars Odds.
Kaffi
og rjómapönnukökur verða í boði Ingastofunefndar í tilefni dags og
sólar.