01.01.2017 - 16:58 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið
Króndemantabrúðkaup súgfirskra hjóna
Súgfirðingarnir Kristín Sturludóttir og Guðbjörn Björnsson eiga 65 ára brúðkaupsafmæli í dag, 1. janúar 2017.
Þau voru gefin saman í hjónaband í Suðureyrarkirkju í Súgandafirði, 1. janúar 1952 af séra Jóhannesi Pálmasyni presti, sem þjónaði þar í rúmlega 30 ár.
Hann sendi þeim þessa vísu þegar liðin voru 25 ár, á silfurbrúðkaupsdaginn:

Í dag hljómar sætt ykkar silfraða bjalla,
um sæmd þá er fylgdi ykkur leiðina alla.
Svo hljómi hún áfram uns gullhörpur gjalla,
og glitrandi demantar til ykkar falla.