A A A
  • 1950 - Árni Ásbjörn Jónsson
  • 1962 - Siggeir Stefánsson
Undirbúningur vegna kröfugerðar Verkalýðsfélags Vestfirðinga vegna næstu kjarasamninga er að komast á lokastig. Samninganefnd félagsins fundar á mánudagskvöld, 19. jan. 2015, til að leggja lokahönd á kröfur félagsins. Haldnir hafa verið kjaramálafundir víða um félagssvæðið auk þess sem forystumenn félagsins hafa farið í vinnustaðaheimsóknir til að kanna hug félagsmanna.
 Samninganefnd Verk Vest vill kanna hug félagsmanna enn betur og hvetur því þá sem ekki komust á fundi félagsins að taka þátt í stuttri kjaramálakönnun á netinu. 

Könnunin er á vef félagsins. Ekki er hægt að rekja hver sendir inn upplýsingarnar og heldur fyrirtækið Intellecta utan um niðurstöður könnunarinnar. Samninganefnd mun byggja niðurstöðu sína á þessari könnun auk þeirra áherslupunkta sem fram komu á kjaramálafundum félagsins
« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31