13.01.2016 - 15:37 | Höfrungur
Kardemommubærinn á Þingeyri
Kæru vinir, gleðilegt frábært ár. Leikdeild Höfrungs er í stuði einsog ávallt og nú erum við að leggja í nýtt leikævintýri. Við ætlum nefnilega að setja upp eitt vinsælasta leikrit á Íslandi fyrr og síðar. Nefnilega Kardeommubæinn. Æfingar hefjast 6. febrúar og frumsýnt verður laugardaginn 19. mars.
Kynningarfundur fyrir uppfærsluna á Kardemommubænum verður haldin í Stefánsbúð laugardaginn 16. janúar kl.13.30. Allir velkomnir, hvort sem þú vilt leika, smíða, sminka, gera búninga eða bara forvitnast um verkefnið.
Velkomin í Kardemommubæ í Stefánsbúð laugardaginn 16. janúar kl.13.30.
Leikdeild Höfrungs Þingeyri