Kaffidagur Dýrfirðingafélagsins
Kaffidagurinn verður haldinn sunnudaginn 19. apríl í Fella- og Hólakirkju í Breiðholtinu. Eins og undanfarin ár hefjum við daginn á guðþjónustu kl. 14:00. Sr. Svavar Stefánsson þjónar fyrir altari en Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur, flytur hugvekju dagsins. Kór brottfluttra Dýrfirðinga leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Guðbjargar Leifsdóttur.
Að lokinni guðþjónustu verður kaffisala í safnaðarheimilinu. Kaffinefnd félagsins gegnir lykilhlutverki í skipulagi og undirbúningi Kaffidags en það er auðvitað vel þegið þegar fleiri eru tilbúnir að leggja undirbúningi eða bakstri lið.
Allur ágóði af veitingasölu Kaffidagsins fer í sjóð sem veitt er úr til góðra málefna í Dýrafirði. Að þessu sinni hefur verið ákveðið að styrkja Höfrung til áframhaldandi góðra verka. Eins og flestum er kunnugt hefur Höfrungur staðið fyrir uppfærslu skemmtilegra leiksýninga undanfarin ár og nú er Galdrakarlinn í Oz á fjölunum í Félagsheimilinu. Öflug starfsemi Höfrungs, á þessu sviði sem öðrum, hefur án efa jákvæð áhrif á samfélagið í Dýrafirði.
Kaffidagurinn hefur notið viðvarandi vinsælda hjá Dýrfirðingum, venslafólki og vinum þeirra á suðvesturhorninu og við eigum því von á fjölmenni. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á svolitla afþreyingu fyrir börnin.