10.03.2017 - 08:08 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið
Kaffi Sól opnar í Breiðadal
Á vordögum ætlar Guðrún Hanna Óskarsdóttir að opna lítið kaffihús að heimili sínu í Neðri-Breiðadal í Önundarfirði, að hennar sögn einum fallegasta firði landsins.
Á Kaffi Sól verður boðið upp á þjóðlegar veitingar eins og til dæmis hveitikökur með hangikjöti, rúgbrauð með reyktum rauðmaga, rjómapönnukökur og ýmislegt fleira.
Kaffi Sól verður opið alla daga frá kl. 11:00 – 18:00 frá 15. maí til 1. október en eftir þann tíma verður tekið á móti hópum eftir pöntunum.
Neðri-Breiðadalur ervel í sveit sett, stendur hátt undir Breiðadalsstiga, einu svipmesta fjalli fjarðarins og með gríðarfallegt útsýni yfir Önundarfjörð, eins er bærinn nokkuð nálægt þjóð- veginum og því ekki úrleiðis að kíkja í kaffi og með‘í hjá Gunnu.