27.07.2016 - 06:10 | bb.is,Vestfirska forlagið
Jón Jónsson hættir hjá Menningarráði og Fjórðungssambandinu
Jón Jónsson menningarfulltrúi hjá Menningarráði Vestfjarða og Fjórðungssambandi Vestfirðinga hefur sagt upp störfum, að því er fram kemur í tilkynningu frá FV, en hann hefur starfað sem slíkur frá árinu 2007 og haft aðsetur í Þróunarsetrinu á Hólmavík. Jón verður við störf hjá FV út ágústmánuð. Á fundi stjórnar FV á dögunum voru Jóni færðar þakkir fyrir ánægjulegt og gefandi samstarf í gegnum árin og óskaði stjórn honum velfarnaðar í nýju starfi á Hólmavík.
Jón, sem er þjóðfræðingur, hlaut samfélagsviðurkenningu Byggðastofnunar, Landstólpann, árið 2011 fyrir að hafa með störfum sínum vakið jákvæða athygli á sinni heimabyggð og verið ötull talsmaður ferðaþjónustu og menningar á Vestfjörðum. Hann hefur verið virkur í félagsstarfi og menningarlífi og að auki frumkvöðull í uppbyggingu ferðaþjónustu, menningarstofnana og fræðastarfs á svæðinu.