04.12.2009 - 00:30 | SÞ
		
	Jólatrén eru nú á Söndum í Dýrafirði
	
		
		Skógræktarfélagi Dýrafjarðar er ljúft að tilkynna að sunnudaginn 6. desember milli kl. 12:00 og 15:00 gefst fólki kostur á að höggva sér jólatré í skógarreit félagsins á Söndum,  TOYOTA - svæði. Einnig geta menn klippt grenigreinar.
	
	
	
	
Í boði er: sitkagreni og stafafura.
Hvert tré kostar 2.000 kr. -staðgreitt í seðlum.
Búið verður að merkja tré sem má taka en menn þurfa að hafa sög meðferðis. Aðkoma að svæðinu er af Brekkuhálsi, einnig hægt að aka hesthúsamegin frá. Ef það snjóar á föstudag/laugardag getur vegur verið erfiður öðrum en jeppum.
Heitt kakó og piparkökur á staðnum.
Íslenskt - auðvitað !
Skógræktarfélag Dýrafjarðar


		
		
















