A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
11.12.2016 - 07:04 | Skógræktarfélag Dýrafjarðar,Sæmundur Þorvaldsson,Vestfirska forlagið

Jólatréð 2016 á Söndum

Skógræktarfélag Dýrafjarðar tilkynnir að í dag, sunnudaginn 11. des. 2016 milli kl. 13:00 og 15:00, gefst fólki kostur á að höggva sér jólatré í skógreit félagsins á Söndum,  TOYOTA - svæði. Einnig hægt að klippa skrautgreinar.

Í boði er: sitkagreni og stafafura.
Hvert tré kostar 5.000 kr. –staðgreitt í seðlum.

 Búið verður að merkja tré sem má taka en menn þurfa að hafa sög meðferðis.

Aðkoma að svæðinu er af Brekkuhálsi.
Fara þarf varlega á litlum bílum, -vegslóði en ekki vegur.
 
Heitt kakó, ketilkaffi og piparkökur á staðnum.

                         Aðeins þessi eini dagur !  
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31