A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
16.08.2016 - 06:30 | bb.is,Vestfirska forlagið

Jóhanna María hættir á þingi

Jóhanna María Sigmundsdóttir.
Jóhanna María Sigmundsdóttir.
Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs. Hún tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni í gærmorgun.

Hún er þar með sautjándi þingmaðurinn sem tilkynnir að hún sækist ekki eftir áframhaldandi þingsetu. Þar með hafa allir sitjandi þingmenn tilkynnt um hvort þeir hyggi á áframhaldandi þingsetu eða ekki. 


Jóhanna María varð yngsti þingmaður Íslandssögunnar þegar Framsóknarflokkurinn vann stórsigur í síðustu þingkosningum. Hún var þá 21 árs að aldri og var í fjórða sæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30