07.10.2015 - 07:04 | BIB,bb.is
Íslenskt sjávarfang á Þingeyri: - Uppsagnir liður í breytingum
Í dag starfa hjá vinnslu á Þingeyri um þrjátíu manns og sem er talsverð fjölgun starfa þar sem hjá Vísi voru undir það síðasta innan við tuttugu starfsmenn. Hann segir miklar breytingar vera hjá vinnslunni frá því ÍS tók við, sem aðallega megi sjá í að vinna hafi aldrei fallið niður vegna hráefnisskorts. Segir Rúnar að starfsmönnum muni ekki verða fækkað, enda teljum þau að minnst megi vera þrjátíu starfsmenn við vinnslu svo hægt sé að halda uppi rekstrarhæfri einingu á Þingeyri.
Íslenskt sjávarfang hóf vinnslu á Þingeyri í lok apríl. Hvað vinnslu afurða segir Rúnar að í maímánuði hafi aðallega verið unninn steinbítur af Agli ÍS sem landað var á Þingeyri. Í júní var lokað vegna sumarleyfa. Í júlí og ágúst var unninn makríll af viðskiptabátum Íslensk sjávarfangs. Eftir makrílvertíð hefur verið unninn þorskur og ufsi. Þorskurinn hefur bæði verið unninn í ferskar afurðir og léttsöltuð flök og bita, en ufsinn í fryst flök. Hefur hráefni til vinnslu komið af viðskiptabátum Íslensks sjávarfangs sem landa víða um land, segir Rúnar stærri báta haga seglum sínum eftir veðurútliti og hvernig veiði sé á mismunandi veiðisvæðum, en smábátar landa á Þingeyri eða Ísafirði.