18.09.2015 - 06:50 | BIB,Bjarni Guðmundsson
"Íslenskir sláttuhættir" eftir Bjarna Guðmundsson
... fer í smiðju til langfrænda og annars Kirkbælings, Guðm. Inga:
Sláið fram úr í dag því að heyskap er hætt.
Gefið hrífum og orfum sinn frið.
En í kringum mín hús verði hreinsað og bætt
vegna hennar sem búist er við ...
Og hún kom í mínar hendur í kvöld, "Íslenskir sláttuhættir" ...
Fallegt bókverk úr smiðju Opnu /Sigurðar Svavarssonar og samstarfsmanns hans, Eyjólfs Jónssonar - fagurkerar og smiðir þúsund þjalna báðir tveir, sem búið hafa verk mitt í hendur lesendum af þakkarverðri velvild, fagmennsku og vandvirkni ...
Ég leyfði mér því tár af konjakki við kertaljós ...
Af Facebook-síðu Bjarna Guðmundssonar frá Kirkjubóli í Kirkjubólsdal í Dýrafirði.