18.02.2016 - 09:21 | Hallgrímur Sveinsson
Íslandsgjald væri eins og dropi í hafið!
Dæmi um verð á gistingu með morgunverði í eins manns herbergi á þremur hótelum á Íslandi næsta sumar:
Norðausturland 12,000 kr.
Vestfirðir 17,700 kr.
Reykjavík 42,771 kr.
Aðgangur í Bláa lónið í sumar verður frá 7,300 upp í 11,600 kr.
Leiga á inniskóm 1,500 kr.
Þrír spekingar fyrir vestan hafa leyft sér að leggja fram þá tillögu að allir erlendir ferðamenn sem ætla að skoða og ferðast um landið greiði 5,000,- kr. í aðgangseyri, sem vel mætti kalla Íslandsgjald. Fyrsta árið gerir það 5 milljarða króna miðað við eina milljón gjaldskyldra ferðamanna. Og til hvers? Jú, þessir peningar verði notaðir til dæmis fyrsta árið í uppbyggingu og rekstur:
- 1. Löggæslu hreppstjóra eða svæðisumsjónarmanna. Verði 100 talsins. Rekstrarkostnaðu 1 milljarður kr.
- 2. Mannsæmandi hreinlætis- og salernisaðstaða þar sem ekki eru hótel og veitingastaðir. 50 hús til að byrja með. Kostnaður og rekstur 3 milljarðar kr.
- 3. Kostnaður vegna fræðslu um landið 500 milljónir kr.
- 4. Rekstur björgunarsveita 500 milljónir kr.
Alls 5 milljarðar kr.
Er þetta ekki vert umhugsunar?