24.08.2016 - 21:18 | Vestfirska forlagið,Ísafjarðarbær,bb.is
Ísafjarðarbær: - Opið fyrir umsóknir um menningarstyrki
Við fyrri úthlutun veitti Atvinnu- og menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar 750.000 krónur, þar fékk Ómar Smári Kristinsson 125.000.- vegna teiknimyndasögu byggðri á Gísla sögu Súrssonar, Edinborgarhúsið fékk sömu upphæð vegna fyrirhugaðrar sýningar á leikritinu Flóð og einnig Gunnar Jónsson vegna verksins 4horn á sjó. Kvennakór Ísafjarðar fékk hundrað þúsund vegna útgáfu hljómdisks í tilefni 10 ára afmælis kórsins og sömu upphæð fengu LÚR festival og einnig Marsibil G. Kristjánsdóttir fyrir Gísla sögu á refil. Þá fékk Þjóðbúningafélag Vestfjarða, fékk 75.000.- vegna 150 einstaklingar í þjóðbúningi í tilefni af 150 ára afmæli Ísafjarðarbæjar.
Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er t.o.m. fimmtudagsins 15. september næstkomandi. Umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.