Í dagsins önn: - Falleg saga úr umferðinni á Þingeyri
Brekkugengið (sbr. Olsen -Olsen gengið) var að aka eftir Fjarðargötunni snemma í vor. Þegar það kom á móts við brekkuna fyrir innan Skandalabrekkuna sem var, sáu þau bíl koma þar niður. Virtist hann ekki vera alveg með á nótunum og tók götuna af genginu. Var hér á ferð heiðursmaðurinn Kristján Gunnarsson í Smiðjunni. En þar sem Brekkugengið er á góðum bíl og yfirleitt með góðan bílstjóra, sem alltaf er með hugann blístrandi við aksturinn, fór hér allt vel.
Engin stórhætta á ferðum. Ekki að nefna það.
Jæja. Svo var farið úteftir að sækja kvikmyndaleikarann. Allt í einu kemur bíll akandi og vill greinilega hafa tal af genginu. Var þar Kiddi í Smiðjunni á ferð að koma frá að fara með frúna í Föndrið. Var hann greinilega hálf miður sín og bað um gott veður. Hann hefði bara alls ekki séð Brekkujeppann. Þætti þetta mjög leiðinlegt. Það féll auðvitað allt í ljúfa löð.
Slíkum atvikum úr umferðinni má vel halda á lofti. Að menn skuli komi og biðjast afsökunar á ekki stórvægilegri hlut er sérstakt. Nóg er um leiðindin á þeim vettvangi samt. Faðir Kristjáns, öðlingurinn og ljúfmennið Gunnar á Hofi, var einmitt formaður klúbbsins Öruggur akstur á Þingeyri á sínum tíma. Honum hefði líkað vel þessi sögulok. Enda mega afkomendur þeirra Hofshjóna ekki vamm sitt vita í neinu.