Hvar eru allar mýsnar? Ekki sést ein einasta mús í allan vetur!
Á aðalfundi Búnðarfélags Auðkúluhrepps, sem haldinn var í Mjólkárvirkjun 7. apríl 2016, var eftirfarandi fært m. a. til bókar:
„Árni á Laugabóli sagði að enginn örn hefði sést á Laugabóli í vetur, en Steinar í Mjólká sagði að hann hefði séð Össu tvisvar. Aftur á móti sagðist hann ekki hafa séð eina einustu mús í allan vetur og þótti rart. Sama kom fram hjá öðrum sem tjáðu sig um málið: Engar mýs á ferli það sem af er vetri svo vitað sé! Steinar spurði hvort eitthvað væri að breytast í lífríkinu. Enginn treysti sér til að svara því. Verður því að kalla til sérfróða menn. Minkur og tófa hafa ekki verið mikið á ferðinni.“
Okkur þykir rétt að vekja athygli á þessu merkilega atriði með mýsnar núna í vetrarlokin. Hvað kemur til? Er þetta kannski svona víðar í byggðum hér fyrir vestan?