24.03.2015 - 12:00 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson
Hrós vikunnar
Hrós vikunnar fær fjalladeildin hjá Orkubúi Vestfjarða.
Þegar allt hefur um koll keyrt og staurarnir í rafmagnslínunum brotnað eins og eldspýtur, fara þessir góðu og hraustu drengir í línuflokknum af stað. Þeir vinna oft við ótrúlega erfiðar aðstæður. Allt á kafi í snjó, stundum hátt uppi í fjallahlíðum og jafnvel uppi á háfjöllum.
Við sem erum oftast á láglendinu berum mikið traust til þessara manna og mega þeir gjarnan vita það.
Hallgrímur Sveinsson Björn Ingi Bjarnason.