Hrós vikunnar
Hrós vikunnar fær starfsfólkið á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Tjörn á Þingeyri sem sumir kalla Hótel Tjörn. Þó fyrr hefði verið segja sumir. Heldri borgarar sem þar dvelja eru númer eitt, tvö og þrjú hjá þeim. Elskulegt viðmót, væntumþykja og hlýja í garð heimilismanna eru grundvallaratriði í þeirra starfi.
Haldið var námskeið á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða fyrir starfskonur á Tjörn. Þær hófu námið í október 2014 og luku því 21. janúar sl. Þær hafa lagt sig mikið fram og stundað það af kappi, segir á heimasíðu Fræðslumiðstöðvarinnar.
Fjallað var um gæði og öryggi í meðferð matvæla og öðru lagi um líkamsbeitingu, smitgát, öryggismál, þjónustu, sótthreinsun, ræstingu og skyndihjálp.
Á meðfylgjandi mynd frá námseiðslokum eru; standandi frá vinstri: Erla Ástvaldsdóttir, forstöðukona, Ausra frá Litháen, Ingibjörg Vignisdóttir, Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir, María Valsdóttir, Iwona Motycka, Ásta Kristinsdóttir og Sigríður Þórarinsdóttir.
Fyrir framan þær sitja Auður Ólafsdóttir kennari og Smári Haraldsson forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.