03.05.2015 - 07:07 | Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason
Hrós vikunnar
Hrós vikunnar fær Sigurður Þ. Gunnarsson, hreppstjóri frá Miðbæ í Haukadal, fyrir að trúa á mátt moldarinnar.
Sigurður setur niður kartöflur á hverju vori. Er með seigari mönnum í kartöfluræktinni hér vestra. Þetta mættu fleiri gera sem vettlingi geta valdið. Alls staðar hægt að fá garðland. Kartaflan er stórkostleg jurt að maður tali nú ekki um gulrófur, gulrætur og allt kálið. Hreppstjórinn okkar ræktar heilmikið af þessum dásamlegu jurtum líka.
Var einhver að tala um jarðarber? Þau leynast nú ótrúlega víða. Svo er bara að þeyta rjómann og setja nokkra rommdropa útí. Þeir eru farnir að fást aftur. Berist fram kalt!
Hallgrímur Sveinsson
Björn Ingi Bjarnason