Hringvegurinn um Vestfirsku Alpana opnaðist í gær, fimmtudag
Í gær, fimmtudag 9. júní 2016, luku þeir félagarnir Gunnar G. Sigurðsson og Valdemar S. Jónsson hjá Græði í Varmadal í Önundarfirði, við að moka fjörurnar undir Skútabjörgum og Sléttubjörgum í Arnarfirði utan Stapadals. Er því hringvegurinn um Vestfirsku Alpana orðinn þokkalega fær jeppum og öðrum slíkum farartækjum að sögn Gunnars. Allt var með hefðbundnum hætti á fjörunum segir hann. Ægir konungur hefur í vetur kastað svipuðum grjóthnullungum upp á land og hann er vanur.
Valdemar skrifar okkur eftirfarandi:
Kæri frændi
Hér er mynd af okkur Gunnari á okkar vélum sem var tekin í gær þegar við vorum búnir að opna vegarslóðann um Skútabjörg/Sléttubjörg. Mér datt í hug að kalla hana „verkfundur hjá vélunum“ þar sem við Gunnsi sjáumst ekki á henni. Svo er hitt að á þeim átta eða níu árum sem ég hef tekið þátt í þessari vinnu með Gunnsa, hef ég einu sinni séð á þessari leið eitt hræ af ref en nú bregður svo við að ég sá þrjá refi á hlaupum á þessum tveim dögum. Það hvarflar að mér sá grunur að það verði einhver afföll af lömbum á þessu svæði í sumar.
Með bestu kveðju,
Valdemar S. Jónsson