Hreppstjórakrónika úr Dýrafirði
Sú var tíðin að hreppstjórar voru í hverri sveit á Íslandi. Var svo um aldir. Þeir heyra nú sögunni til. En nú hafa spekingar þrír í Dýrafirði komið fram með tillögu um að endurreisa þessi gömlu embætti. Á algjörlega nýjum grunni sem nokkurs konar ferðamálahreppstjórar.
Þeir segja:
Gömlu hreppstjóraembættin verði endurreist ferðafólki til aðstoðar. 100 hreppstjórar verði nokkurs konar svæðisumsjónarmenn. Með lögregluvald samkvæmt erindisbréfi. Gjörkunnugir og hæfir menn af báðum kynjum yrðu ráðnir í fullt starf eftir auglýsingu þar um. Lögreglustjórar eða sýslumenn yrðu yfirmenn þeirra. Þeir væru ekki með byssur við lendar eins og sheriffarnir í villta vestrinu.
Nei, en lögreglustjörnu hefðu þeir í barmi og kannski hreppstjórahúfu. Hefðu heimild til að sekta þá á staðnum sem ekki virða lög og reglur. Hreppstjórar gætu orðið mjög gagnlegir og vinalegir tengiliðir við ferðafólkið. Væru til staðar og hefðu kontról hver á sínu svæði og myndu spara lögreglunni mörg sporin. Hún hefur í nógu öðru að snúast. Ferðamennirnir myndu finna að við berum umhyggju fyrir þeim! Þetta gæti orðið fordæmi á heimsvísu.