A A A
31.03.2016 - 19:26 | Vestfirska forlagið,skutull.is,bb.is

Hrafnseyrarheiði opin

Búið er að opna Hrafnseyrarheiði fyrir umferð en mokstur stendur enn yfir. Enn er unnið að mokstri á Dynjandisheiði. Á upplýsingasíðu Vegagerðarinnar kemur fram að á Hrafnseyrarheiði er krapi og snjóþekja. Það þykir gott ef heiðin opnast fyrir 1. apríl ár hvert, því oft hefur það dregist fram í maímánuð að opna leiðina á milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar. Dýrafjarðargöng munu breyta þessari stöðu, en væntanlega verður byrjað á þeim á næsta ári.
« Apríl »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30