A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
Sér til Hrafnseyrarheiðar af Brekkudal 9. marz 2016. Það er Hreinn Þórðarson, bóndi og hreppstjóri á Auðkúlu, sem er í forgrunni.
Sér til Hrafnseyrarheiðar af Brekkudal 9. marz 2016. Það er Hreinn Þórðarson, bóndi og hreppstjóri á Auðkúlu, sem er í forgrunni.
« 1 af 3 »

Í gærmorgun brá Gunnar Gísli Sigurðsson undir sig betri fætinum, hoppaði upp í Payloader sinn og blés snjó af veginum fram í beygjur á Brekkudal. Það var auðvitað Vegagerðin sem gaf honum grænt ljós á þetta. Er gott til þess að vita, því það lifnar yfir öllum sem hér ganga um grund, þegar slíkt á sér stað.

   Ekki verður sagt að mikill snjór sé á sjálfum veginum þangað uppeftir. En í giljum og lautum er töluverður snjór. Sé litið til Hrafnseyrarheiðar má eiginlega segja það sama. Að vísu leyna snjóalög á veginum á þessu svæði oft á sér.

Snjóruðningurinn á vegkantinum frá því í vetur sést þó nokkuð vel upp í Kinninni. En efst í svokölluðu Horni nær snjórinn fram af kantinum á nokkuð löngum kafla. Svo er það náttúrlega spurningin hvernig snjóalög eru hinum megin í heiðinni í Skipadal. Ef að líkum lætur er meiri snjór þar.

   Búast má við að Vegagerðin skoði snjóalög á Hrafnseyrarheiði upp úr 20. marz. Hvenær heiðin  verður svo mokuð verður bara að koma í ljós. Er þetta sama verklag og gildir í Árneshreppi á Ströndum. 

   Í gær komu fimm menn á snjósleðum yfir Hrafnseyrarheiði. Voru það smiðir sem eru að vinna í Mjólkárvirkjun við endurnýjun Mjólkár 1.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30