A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
26.01.2015 - 11:51 | bb.is

Höfrungur gaf Leikræna tjáningu

Formaður, meðstjórnandi og yngsti meðlimur Höfrungs færðu Grunnskólanum á Þingeyri bókagjöf. Ljósm. Erna Höskuldsdóttir.
Formaður, meðstjórnandi og yngsti meðlimur Höfrungs færðu Grunnskólanum á Þingeyri bókagjöf. Ljósm. Erna Höskuldsdóttir.
Íþróttafélagið Höfrungur á Þingeyri færði Grunnskólanum á staðnum bókagjöf fyrir stuttu. Formaður félagsins Sigmundur F. Þórðarson og meðstjórnandi Guðrún Snæbjörg Sigþórsdóttir ásamt yngsta meðlimi félagsins honum Sigþóri Örn Jörgensen, færðu skólanum að gjöf nokkur eintök af bókinni Leikræn tjáning eftir Elfar Loga Hannesson. Bókin inniheldur fjölbreyttar æfingar sem nýtast í kennslu í leikrænni tjáningu fyrir alla aldurshópa. 

Með bókinni fylgir leiklistarnámskeið sem Elfar Logi höfundur bókarinnar mun stýra fyrir alla nemendur skólans. Gjöfin er gefin skólanum í tilefni þess að íþróttafélagið Höfrungur varð 110 ára þann 4. desember síðastliðinn. 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30