27.05.2009 - 23:30 | JÓH
Hnúfubakur í Dýrafirði
Hnúfubakur hefur verið á svamli í Dýrafirðinum síðan í gær. Hann er eflaust í ætisleit því hann hefur synt fram og til baka með tilheyrandi blæstri og sporðaköstum. Hvalurinn hefur verið langt inn á firði - sést frá Gemlufalli og innundir Höfðaodda en í kvöld hefur hann verið að færa sig utar í fjörðinn. Davíð Davíðsson náði myndum af Hnúfubaknum í gær og þær eru komnar á myndasíðu Þingeyrarvefsins.