Hlustað á útvarp á Núpi fyrir 65 árum
Ég sá í viðburðaskrá vasabókar að á þessum degi, 25.janúar árið 1952 andaðist Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands.
Á svipstundu er ég horfinn 65 ár til baka og kominn að Núpi.
Ég var að búa mig undir landspróf í þeim ágæta héraðsskóla.
Fyrir 65 árum þekktust ekki útvarpstæki sem hægt var að hafa með sér hvert sem fara vildi og engir nemendur áttu útvarp í herbergjum sínum. Það var ekki heldur útvarpstæki þar sem nemendur komu saman---í stuttu máli--við heyrðum aldrei í útvarpi --utan einu sinni.
Við söknuðum þess ekki--tíminn leið við nám og samveru, samræður og vangaveltur um landsins gagn og nauðsynjar. --en--
Allt í einu er komið útvarp í kennslustofu og Jón húsvörður búinn að tengja við loftnet sem var nauðsynlegt til að ná sambandi við Ríkisútvarpið.
Allir nemendur kallaðir til kennslustofu að hlusta--og hvað var í boði. Það var útvarp frá jarðarför Sveins Björnssonar. Svo var hún afstaðin og þar með lokið einu útvarpshlustun á skólaárinu.
Af Facebook-síðu Emils Ragnars Hjartarsonar.