A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
25.01.2017 - 21:42 | Vestfirska forlagið,Emil Ragnar Hjartarson,Björn Ingi Bjarnason

Hlustað á útvarp á Núpi fyrir 65 árum

Núpur í Dýrafirði.
Núpur í Dýrafirði.
« 1 af 4 »

Ég sá í viðburðaskrá vasabókar að á þessum degi, 25.janúar árið 1952 andaðist Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands.

Á svipstundu er ég horfinn 65 ár til baka og kominn að Núpi.
Ég var að búa mig undir landspróf í þeim ágæta héraðsskóla.

Fyrir 65 árum þekktust ekki útvarpstæki sem hægt var að hafa með sér hvert sem fara vildi og engir nemendur áttu útvarp í herbergjum sínum. Það var ekki heldur útvarpstæki þar sem nemendur komu saman---í stuttu máli--v
ið heyrðum aldrei í útvarpi --utan einu sinni.

Við söknuðum þess ekki--tíminn leið við nám og samveru, samræður og vangaveltur um landsins gagn og nauðsynjar. --en--

Allt í einu er komið útvarp í kennslustofu og Jón húsvörður búinn að tengja við loftnet sem var nauðsynlegt til að ná sambandi við Ríkisútvarpið.

Allir nemendur kallaðir til kennslustofu að hlusta--og hvað var í boði. Það var útvarp frá jarðarför Sveins Björnssonar. Svo var hún afstaðin og þar með lokið einu útvarpshlustun á skólaárinu.

Af Facebook-síðu Emils Ragnars Hjartarsonar.

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30