A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
M.a. verður farið um Svalvogahringinn í Dýrafirði og Arnarfirði.
M.a. verður farið um Svalvogahringinn í Dýrafirði og Arnarfirði.
Hlaupahátíð á Vestfjörðum fer fram í sjöunda nú á helginni 17.-19. júl 2015. 

Hátíðin hófst með keppni í sjósundi og Arnarneshlaupi í gær. Sjósundið fór fram við aðstöðu Siglingaklúbbsins Sæfara í Neðstakaupstað á Ísafirði. Keppt var í 500 og 1.500 metra sjósundi. 

Á hlaupatíðinni hefur hingað til verið hlaupið um Óshlíð frá Bolungarvík, en vegna þess hve hrunið hefur úr veginum um Óshlíðina hefur í staðinn verið tekin upp ný hlaupaleið frá frá Súðavík og út á Ísafjörð, svokallað Arnarneshlaup. 

Laugardaginn 18. júlí verður hjólreiðakeppnin, 55 kílómetra leið um Svalvogahringinn í Dýrafirði og Arnarfirði. Sama dag verður keppt í skemmtiskokki og skemmtihjólreiðum á Þingeyri. 

Hlaupahátíðinni á Vestfjörðum lýkur á sunnudeginum með Vesturgötuhlaupinu, en þá er hlaupið frá Þingeyri 10, 24 og 45 kílómetra hlaup. 

Um 300 manns hafa tekið þátt í Hlaupahátíð á Vestfjörðum síðustu ár og má búast við að það verði ekki færri þetta árið. 

Hægt er að skrá sig til leiks 
hér á heimasíðu Hlaupahátíðarinnar.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30