A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
18.06.2016 - 07:07 | Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

Hlaupahátíð á Vestfjörðum 15. - 17. júlí 2016

Frá hlaupahátíðinni 2015.
Frá hlaupahátíðinni 2015.
Hlaupahátíðin þetta árið fer fram dagana 15. - 17.  júlí og verður dagskráin með sama sniði og undanfarin ár. Arnarneshlaupið verður þreytt í annað sinn í sumar en það tók sem kunnugt er við af Óshlíðarhlaupinu. 

Dagskrá Hlaupahátíðarinnar 2016

Dagskrá hlaupahátíðarinnar í heild sinni lítur þannig út:

Föstudagur 15. júlí

  • Kl. 16:00 Sjósund 1500 m (2000 kr)
  • Kl. 16:00 Sjósund 500 m (2000 kr)
  • Kl. 20:00 Arnarneshlaup 21 km (3500 kr)
  • Kl. 20.40 Arnarneshlaup 10 km (2500 kr)
  • kl. 22.15 Verðlaunaafhending á Silfurtorgi fyrir Arnarneshlaup

Laugardagur 16. júlí

  • Kl. 10.00 Fjallahjólreiðar 55 km (5000 kr)
  • Kl. 10.15 Skemmtihjólreiðar 8 km (500 kr)
  • Kl. 11.30 Skemmtiskokk á Þingeyri, 2 og 4 km (500 kr)
  • Útijóga, vöfflubakstur og fleira skemmtilegt við sundlaugina á Þingeyri
  • Athugið að tímasetning á skemmtihjólreiðum getur breyst

Sunnudagur 17. júlí

  • Kl. 08:00 Tvöföld Vesturgata 45 km (6000 kr)
  • Kl. 11:00 Heil Vesturgata 24 km (6000 kr)
  • Kl. 12:45 Hálf Vesturgata 10 km (4000 kr)

 

Þríþraut samanstendur af 500 m sjósundi, 55 km fjalahjólreiðum og 24 km Vesturgata (10000 kr)

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31