Hjónaballsvísur 2009
Fölnaðar rósir og fallið er lauf
Framundan skammdegis tilveran grá
Það blikar í ljós þó að birtan sé dauf
og blundar Í hjörtunum ólgandi þrá
Hjónaball árlegt er haldið í kvöld
Hljómsveitin  danslögin syngur og leikur
Víst er að hér verður gleði við völd
Við dillandi tónlist og ljúfengar steikur
Hann Ómar með formensku í ráðinu fer
Fjölmörgum  verkefnum þarf jú  að sinna
Þá fékk hann í lið með sér framsækinn her
Og fól mér í hendingum, liðið að kynna
Frúin var  einnig til formennsku skráð
 Fara þau saman með stjórnina og völdin
 En Guðrún þó hefur í hendi öll ráð
Og hjartað slær örar í húminu ákvöldin
Ragnar á einnig í ráðinu stól
Reykar nú hugur að harðfisk og kvóta
Í klofið hann keypti sér kraftmikið tól
kveðst vilja frelsis og náttúru njóta
Ef Snædísi langar  að fara á flakk
 frjálslega um  veginn og landið sitt þjóta
Þá beislar hún kraftinn í blikk  fagra-Blakk
og blíð verður nótt eftir ökuferð skjóta  
Bergur er einnig á blaðinu hér
Brosandi gengur með viljann til starfa
Í exel og multiplan margfróður er
Og tölvur má nota til ýmissa þarfa
Og Emma á líka  með ráðinu leið
Lætur að  bóndaum   ástar orð hlý 
Þau fengu sér nýlega sjálfrenni reið
Sem hægt er að sofa og svoleiðis  í
Af  Eirík á Felli að segja er fátt
Sem farmaður sigldi um ólgandi dröfn
Vinurinn hefur þá  vafalaust átt
Vingott við "Guggurnar " í hverri höfn
Mary frá Hjarðadal má enn um sinn 
 mannsefni n láta, jú eftir sér bíða
Með vonblik í auga og brosvipru á kinn
Blönduð er þráin af spennu og kvíða
Lára var einnig í verkefnið valin
Vakir í brjóstinu brennandi þrá
Léttstíg  og  brosandi svífur um salinn
Af sjónum mun Einar sinn bráðlega fá
Á ólgandi hafinu er Einar að fást
Við ýsur og þorska ,sem þar er að finna
En heima er beðið með brennandi ást
Best er að láta hér ljóðinu linna.


		
		
















