07.10.2008 - 23:45 | Tilkynning
Hjónaball 2008
Hjónaballið verður haldið í 74. sinn þann 8. nóvember næstkomandi í Félagsheimilinu á Þingeyri. Jóhannes Oddur mun sjá um kræsingarnar og hinn síkáti Benedikt Sigurðsson, sundþjálfari frá Bolungarvík, mun sjá um veislustjórn. Eftir borðhald mun hljómsveitin Safngripirnir spila fyrir dansi. Gengið verður að venju í hús og skráningar teknar niður. Einnig er hægt að skrá sig hjá Elsu Maríu elsamaria@snerpa.is og Ernu erh9@hi.is. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.