28.02.2017 - 21:28 | Vestfirska forlagið,Emil Ragnar Hjartarson,Björn Ingi Bjarnason
Hjólhýsi
Guðni og Ási voru þá ýtustjórar, stjórnuðu Sandsýtunni sem var International beltavél stærðin TD 14 og var þá öflugusta jarðýtan í Vestur Ísafjarðarsýslu. Þeir voru að ryðja veginn í skriðufótum innan við Langasker, þegar verið er að leggja veg fyrir Dýrafjörð, unnu vaktavinnu og sá sem frívakt átti svaf þá í hjólhýsinu því arna. Þessi háttur hafður á því þeirra vinnustaður var nokkuð fjarri vegavinnubúðum og illa bílfært til þeirra.
Guðni og Ási voru lengi vinnufélagar---oft nefndir í sömu andránni.
Guðni einn af frumherjum í ýtumanna hópi fyrir vestan, hlaut eldskírn sína við heldur óblíðar aðstæður þegar vegur var lagður yfir Dalsófæru út í Valþjófsdal árið1949.
Ási stjórnaði Sandsýtunni lengi, auk þess harmonikuleikari á Sandböllum og víðar----fimleikamaður --gerði það gjarnan þegar hann fór út úr ýtunni að rétta úr sér að ganga á gálganum fram að tönninni og standa á höndum á henni. Það væri gaman að eiga þá hvíldarleikfimi á mynd.
Báðir þessir "Sandmenn" prýðilegir félagar.