Hestamannamót Storms 2008
Föstudagurinn 18.júlí:
kl. 16.00 hefst opin forkeppni:
B.flokkur gæðinga
Ungmennaflokkur
A.flokkur gæðinga
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Gæðingatölt
Kl. 20:30 Mótssetning og kvöldvaka í reiðhöllinni. Grín og glens fyrir alla fjölskylduna. Á dagskránni verður m.a. fljúgandi skeið, Sandariddarinn 2008, sölusýning, boðhlaup og ýmsar óvæntar uppákomur.
Laugardaginn 19.júlí kl. 12:00 hópreið hestamanna.
Úrslit:
B-flokkur gæðinga
Ungmennaflokkur
A-flokkur gæðinga
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Gæðingatölt
Mótslit: Að móti loknu verður farið í útreiðartúrinn góða. Forreiðarsveinn verður Guðmundur Ingvarsson. Allir hestfærir velkomnir með.
Um kl.20:00 hefst grillpartý í reiðhöllinni, heitt grill á staðnum. Hver og einn kemur með mat fyrir sig og við borðum saman og njótum samverunnar. Lifandi músik fram eftir kvöldi!!!
Gott tjaldsvæði er á Söndum og aðstaða fyrir hross! Aðgöngumiði sem gildir á allt báða dagana: Fullorðnir kr. 1.000,-- Börn í grunnskóla kr. 500,--
Sjáumst þar sem lífið er, á hestamannamóti Storms, á Söndum í Dýrafirði.
Mótsnefnd 2008.