A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
18.06.2016 - 15:02 | Vestfirska forlagið,Alþingi

Hátíðarræða forseta Alþingis í Winnipeg á 17. júní 2016

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis ið styttu Jóns Sigurðssonar fyrir framan þinghúsið í Winnipeg.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis ið styttu Jóns Sigurðssonar fyrir framan þinghúsið í Winnipeg.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, flutti í gær hátíðarræðu á þjóðhátíðarsamkomu Vestur-Íslendinga við styttu Jóns Sigurðssonar fyrir framan þinghúsið í Winnipeg. 

Í ræðu sinni lagði hann meðal annars áherslu á hin sterku tengsl milli Íslands og Kanada sem þakka má öflugu samfélagi Vestur-Íslendinga og tækifæri til aukinnar samvinnu.

Í gærdag átti forseti Alþingis fund með forseta fylkisþings Mannitoba, Myrnu Diedger, og Rick Mantey, ráðherra alþjóðasamskipta.  Á báðum fundum kom fram einlægur áhugi á að efla samskiptin við Ísland á sviði menningar, stjórnmála og viðskipta.

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, og Sigrún J. Þórisdóttir, eiginkona hans, eru heiðursgestir félags Vestur-Íslendinga í Kanada 14.-19. júní 2016. Þau hafa á meðan dvöl þeirra stendur heimsótt Íslendingabyggðir í Winnipeg og Norður-Dakóta.  Í dag, 18. júní, munu þau heimsækja Gimli, Árborg og Riverton þar sem meðal annars fer fram árlegt kvennahlaup, að íslenskum sið. 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30