19.11.2016 - 08:10 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið
Hátíð Bókmenntafélagsins í dag - 19. nóv. 2016
Hið íslenska bókmennafélag fagnar því í ár að tvö hundruð ár eru liðin frá stofnun félagsins og á þeim tíma hefur félagið staðið fyrir fjölbreytilegri starfsemi, ekki síst veglegu útgáfustarfi. Í tilefni afmælisins verður efnt til hátíðarsamkomu í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, laugardaginn 19. nóvember 2016, klukkan 14.
Á dagskrá hátíðarinnar, sem Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, stýrir, eru meðal annars ávörp Jóns Sigurðssonar, forseta Hins íslenska bókmenntafélags, og Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands. Kristinn Sigmundsson söngvari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari flytja valin sönglög frá stofnári félagsins, 1816, eftir Beethoven, Schubert og Rossini, og þá er undir yfirskriftinni Svipþyrping sækir þing brugðið upp svipmyndum af helstu forvígismönnum í 200 ára sögu bókmenntafélagsins.
Höfundar og flytjendur atriðanna eru leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Helena Stefánsdóttir myndbandshönnuður og leikstjórinn Marta Nordal.
Forsetar Hins íslenska bókmenntafélags
Reykjavíkurdeild:
- Árni Helgason, stiftsprófastur (1816 – 1848)
- Pétur Pétursson, prófessor, síðar biskup (1848 – 1868)
- Jón Þorkelsson, rektor (1868 – 1877)
- Magnús Stephensen, yfirdómari, síðar landshöfðingi (1877 – 1884)
- Jón Þorkelsson (2) (1844)
- Björn Jónsson, ritstjóri (1884 – 1894)
- Björn M. Ólsen, rektor (1894 – 1900)
- Eiríkur Briem, prófessor (1900 – 1904)
- Kristján Jónsson, dómsstjóri (1904 – 1909)
- Björn M. Ólsen (2) (1909 – 1912)
Kaupmannahafnardeild:
- Rasmus Kristján Rask, prófessor (1816)
- Bjarni Þorsteinsson, fulltrúi, síðar amtmaður (1816 – 1819)
- Finnur Magnússon, prófessor (1819 – 1820)
- Bjarni Þorsteinsson (2) (1820 – 1821)
- Finnur Magnússon (2) (1821 – 1827)
- Rasmus Kristján Rask (2) (1827 – 1831)
- Þorgeir Guðmundsson, yfirkennari, síðar prestur (1831 – 1839)
- Finnur Magnússon (3) (1839 – 1847)
- Brynjólfur Pétursson, stjórnardeildarforseti (1848 – 1851)
- Jón Sigurðsson, alþingismaður (1851 – 1879)
- Sigurður L. Jónasson, skrifari (1880 – 1885)
- Ólafur Halldórsson, skrifstofustjóri (1885 – 1904)
- Valtýr Guðmundsson, dósent (1904 – 1905)
- Þorvaldur Thoroddsen, prófessor (1905 – 1911)
Eftir sameiningu deilda:
- Björn M. Ólsen (3) (1912 – 1918)
- Jón Þorkelsson, þjóðskjalavörður (1918 – 1924)
- Guðmundur Finnbogason, landsbókavörður (1924 – 1943)
- Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður (1943 – 1961)
- Einar Ól. Sveinsson, prófessor (1961 – 1967)
- Sigurður Líndal prófessor emeritus. (1967 – 2015)
- Jón Sigurðsson, fv. seðlabankastjóri og ráðherra (2015 - )