A A A
  • 1950 - Árni Ásbjörn Jónsson
  • 1962 - Siggeir Stefánsson
12.12.2015 - 06:37 | Hallgrímur Sveinsson

Haldið til haga: - Ýmislegt gamalt og gott að vestan

Tveir gamlir hreppstjórar í Arnarfirði bera saman bækurnar: Hallgrímur Sveinsson, stundum nefndur Stóri Grímur á Hrafnseyri og Hreinn Þórðarson á Auðkúlu. Þótt merkilegt sé hefur hann aldrei fengið viðurnefni svo vitað sé! Ljósm. Kristín Lýðsdóttir.

Jamngott = Jafn gott. Dæmi: “Það var jamn gott að Sigga var ekki með.”

Skjaldan = Sjaldan.

Einlægt = Alltaf.

Gamalt úr Arnarfirði:

Dívangormur=langur, slánalegur maður. Notað í neikvæðri merkingu. Dæmi: Hann er helvískur bölvaður dívangormur.

Manngripur= neikvæð lýsing á manni.

Mannaskuld= eitthvað er þessum og þessum að kenna.

Reyndar voru þær fjórar!

Gestur kom á bæ nokkurn fyrir vestan. Húsfreyjan hellti á könnuna og bakaði pönnukökur. Þegar gesturinn hafði innbyrt þrjár, hvatti húsfreyjan hann til enn frekri dáða við pönnukökurnar.

   „Þetta er eiginlega orðið gott, ég er búinn með þrjár.“

   „Þær eru reyndar fjórar, en þér er alveg óhætt að fá þér fleiri. Hér er aldrei talið ofan í menn.“

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31