A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
06.08.2016 - 20:48 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Haldið til haga

Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja á Mýrum í Dýrafirði.
Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja á Mýrum í Dýrafirði.

Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja á Mýrum í Dýrafirði, áður á Gljúfurá í Arnarfirði, ættuð úr Sauðeyjum á Breiðafirði, er minnisstæð kona öllum sem hana þekktu. Hún og eiginmaður hennar, Gísli Vagnsson, voru fyrstu ár sín í húsmennsku á Rauðsstöðum í Arnarfirði. Sagt er að Guðrún hafi haft við orð að það væri ekki fyrir sofandi mann að búa á Rauðsstöðum. Voru það orð að sönnu, svo fljótt sem veður geta skipast þar í lofti.

   En þetta var orðtak Guðrúnar þegar gott var veður:

   “Nú stangar hann ekki hart” og mun vera ættað úr Breiðafjarðareyjum.

   Sonur Guðrúnar, Valdimar sagnfræðingur og héraðshöfðingi á Mýrum, hefur þetta oft á hraðbergi þegar allt leikur í lyndi í veðurfarinu: „Hann stangar ekki hart í dag.“ Svo mun um þá fleiri, Mýrhreppingana.

                            (Mannlíf og saga 17. hefti)

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30