09.10.2017 - 18:10 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vegagerðin,Vestfirska forlagið
HRAÐINN EYKST Í DÝRAFJARÐARGÖNGUM
Graftarhraðinn í Dýrafjarðargöngum eykst í hverri viku.
Í síðustu viku náðist að grafa 66 metra og göngin orðin 177 metrar að lengd. Vikuna þar á undan voru grafnir 52,4 metrar.
Þegar gangamenn eru komnir þetta langt inn í fjallið er þörf á loftræstingu og er búið að setja upp blásara við gangamunnann.
Byrjað er að safna efni góðu efni úr göngunum á haugsvæði þar sem ekki er þörf fyrir meira efni í plön á vinnusvæði lengur. Lakara efnið fer í aðalatriðum beint í vegfyllingu.