A A A
  • 1986 - varð kjarnorkuslysið í Tsjernóbyl
26.06.2012 - 23:42 | JÓH

Gulli byggir á Þingeyri

Skjáskot úr þætti kvöldsins á RÚV.
Skjáskot úr þætti kvöldsins á RÚV.
Fyrr í kvöld var þátturinn Gulli byggir sýndur á RÚV, þar sem meðal annars var sýnt frá framkvæmdum sem staðið hafa yfir á Skjólvíkinni á Fjarðargötu síðustu vikur. Húsið er í eigu ungra reykvískra hjóna sem, að eigin sögn, höfðu leitað lengi að húsi við sjávarkamb og heilluðust af Dýrafirðinum. Þrír arkitektar komu að hugmyndavinnu um breytingar á húsnæðinu en Sigmundur F. Þórðarsson á Þingeyri sér um að koma þeim hugmyndum í verk. Eða eins og Gulli orðar það í þættinum, þá ætlar hann að hjóla í málið! Útveggurinn sem snýr að sjónum hefur meðal annars verið fjarlægður og gluggar komnir þar í stað svo útsýnið fái sín best notið.

Á vefsíðu RÚV er hægt að horfa á þátt kvöldsins (frá Þingeyri byrjar á 22. mínútu) en meira af framkvæmdunum verður á dagskrá þáttarins í næstu viku.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30