A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
16.08.2016 - 07:00 | visir.is,Vestfirska forlagið

Guðni Th. afþakkar forsetafylgd úr landi

Forsetahjónin á Þingeyri fyrr í sumar og á milli þeirra er Gunnhildur Björk Elíasdóttir.
Forsetahjónin á Þingeyri fyrr í sumar og á milli þeirra er Gunnhildur Björk Elíasdóttir.
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands frá 1996 til 2016, var fylgt til og frá Keflavíkurflugvelli af handhafa forsetavalds 45 sinnum á árunum 2012 til 2016. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar.

Brynhildur spurði einnig hvort enn tíðkaðist að handhafar forsetavalds fylgdu forseta Íslands til og frá Keflavíkurflugvelli vegna ferða hans til og frá landinu og handsali gjörninginn þannig að forsetavaldið færist á milli forseta og handhafanna með handabandi.

Í svari forsætisráðherra kemur fram Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hafi óskað eftir því að siðurinn yrði lagður niður. Því hafi verið ákveðið að leggja af þá venju að einn af handhöfum forsetavalds fylgi forseta til og frá Keflavíkurflugvelli þegar hann fer utan í embættiserindum.

Handhafar forsetavaldsins í fjarveru forseta eru forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar. Athygli vakti árið 2012 þegar greint var frá því að Ólafur Ragnar, þáverandi forseti, hafi á árunum 2010 og 2011 sett sig á móti því að siðurinn skyldi aflagðurþegar Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra, spurði um afstöðu hans um það.

Í svari forsætisráðherra kemur einnig fram að handhafar forsetavalds hafa ekki fengið greitt sérstaklega fyrir fylgdina.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30