25.01.2017 - 22:38 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson
Grímsheiði opnaðist í dag!
Rúsínan í þessum pysluenda frétta dagsins er svo sú, að hann Gunnar okkar opnaði Grímsheiði (Hrafnseyrarheiði öðru nafni) í dag.
Þetta er víst ekki formleg opnun heldur á vegum Landsnets ehf eða hf sem eitthvað þurfti að athafna sig í Arnarfirði.
Brekkugengið fór yfir eftir hádegið og það var þessi fína færð.
En ef hann rignir verður mikil hálka.