A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
07.12.2008 - 01:30 | JÓH

Græðgi og spillingu í landinu mótmælt

Frá fundinum í gærkvöldi
Frá fundinum í gærkvöldi
Samstöðufundur var haldinn á Víkingasvæðinu á Þingeyri í gærkvöldi. Fundinn boðaði Borgný Skúladóttir í samvinnu við Íbúasamtökin Átak. Um 30 manns mættu á Víkingasvæðið, eða 10% bæjarbúa, þrátt fyrir kalsaveður. Tilgangur fundarins var að mótmæla rotnu eiginhagsmunapoti, græðgi, spillingu og óheiðarleika í íslensku þjóðfélagi.

Borgný hélt upphafsræðu fundarins og upp í pontu stigu einnig Sæmundur Þorvaldsson, Þórhallur Arason, Gunnhildur Björk Elíasdóttir og Guðmundur Ingvarsson. Áleitnar spurningar komu fram, eins og hvert upphaf núverandi ástands væri og vildu nokkrir meina að þar væri kvótabraskið rót þess vanda sem nú steðjar að þjóðinni og að kreppa hafi ríkt á Vestfjörðum í (allavega)15 ár. Þá hafi Reykvíkingar ekki nennt að hlusta á þetta landsbyggðarvæl um kvóta og þorskveiðar. Aðrir bentu á að Vestfirðingar kæmu betur út úr fjármálakreppunni en samlandar þeirra á höfuðborgarsvæðinu.

 

Einnig kom fram á fundinum að þrátt fyrir þá erfiðleika sem þjóðin gengur í gegnum þessa dagana var fólk hvatt til þess að láta raddir sínar heyrast og bent á að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Boðið var upp á heitt súkkulaði og piparkökur.

 

Mótmælabréf lá frammi á fundinum þar sem fólki var boðið að skrifa undir. Einnig liggja frammi mótmælabréf í söluskála N1 og Íþróttamiðstöðinni á Þingeyri. Gert er ráð fyrir að senda undirskriftirnar til Alþingis.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31