A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
Séð niður í Korpudal í Önundarfirði en þangað liggur leiðin af Álftafjarðarheiði. Ljósm.: BIB
Séð niður í Korpudal í Önundarfirði en þangað liggur leiðin af Álftafjarðarheiði. Ljósm.: BIB
Gönguhátíðin í Súðavík verður sett í dag, 30. júlí 2015,  með ratleik og um kvöldið verður göngutúr um Súðavík með leiðsögn og kvöldganga á Kofra í leiðsögn Barða Ingibjartssonar. Á hátíðinni verður boðið upp á fjölbreyttar göngu um vestfirskt landslag í fylgd heimamanna þar sem sagt verður frá örnefnum og sagðar sögur sem tengjast landinu á svæðinu fyrr og nú. Á hátíðinni er hægt að finna göngu fyrir alla fjölskylduna, enda sannkölluð fjölskylduhátíð.

Á laugardaginn verður fjölbreytt dagskrá með gönguferðum fyrir alla fjölskylduna. Á laugardagsmorgni verður gengið Sauratinda í leiðsögn Önnu Lindar Ragnarsdóttur og einnig verður fjölskylduganga í Valagil í Seljalandsdal. Klukkan 11 verður lagt af stað í göngu um Álftafjarðarheiði, frá Seljalandi í Álftafirði yfir í Korpudal í Önundarfirði í leiðsögn Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur og Sigurðar Péturssonar. Á sunnudagsmorgun verður gengið um Folafót í leiðsögn Barða Ingibjartssonar og önnur ganga verður á tindinn Bardaga milli Álftafjarðar og Seyðisfjarðar í leiðsögn Önnu Lindar Ragnarsdóttur. Á hádegi verður farið í selaskoðun í Hvítanesi þar sem Kristján Kristjánsson á Hvítanesi ætlar segja frá selum og lífinu á Hvítanesi.

Dagskránni lýkur á mánudag með morgungöngu á Kofra með Barða Ingibjartssyni. Dagskrá getur riðlast og breyst með veðri og vindum og ef aðstæður á fjöllum verða varasamar verður boðið upp á láglendisgöngur í staðinn. Það eru Súðavíkurhreppur, Göngufélag Súðavíkur og gönguhópurinn Vesen og vergangur sem standa fyrir gönguhelginni í Súðavík um verslunarmannahelgina, einsog fram kom hér á Skutli.is.

Dagskrána má sjá hér á 
heimasíðu Súðavíkurhrepps.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30