02.05.2015 - 21:11 | BIB,skutull.is
Góð þátttaka fyrir vestan í kröfugöngu og baráttufundi 1. maí
Blíðviðri var á Vestfjörðum og skörtuðu byggðirnar sínu fegursta í morgunsárið.
Baráttudagskráin í Edinborgarhúsinu bar merki þess að í ár eru 100 ár frá því konur og vinnufólk fékk kosningarétt til alþingis.
Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR var aðalræðumaður dagsins og lýsti því ófremdarástandi sem ríkir í kjaramálum launafólks þessa dagana. Hún minntist líka þeirra karla og kvenna sem ruddu brautina í réttindamálum almennings síðustu hundrað árin, ekki síst í verkalýðshreyfingunni.
Kjarnyrtan pistil dagsins flutti Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt, sem minnti á að samfélagsleg gildi tapast í ásælni kapítalismans í hámarksgróða, svo sem Vestfirðingar þekkja með óheftu framsali veiðiheimilda.
Lúðrasveit Tónlistarskólans lék og tónlistarfólk úr tónlistarskólunum á Ísafirði létu ljós sitt skína.
Á Suðureyri var einnig gengið í kröfugöngu og í Félagsheimilinu flutti Lílja Rafney Magnúsdóttir alþingiskona ræðu dagsins. Þá voru flutt söngatriði sem konur sá alfarið um en að þeim loknum bauð fyrsta maí nefndin upp á kjötsúpu.