Glórulaus búskapur að Gili
Innan við og niður undan Glórugili í Mýrarhreppi í Dýrafirði stóð býlið Gil. Á svipuðum stað mun áður hafa staðið hjáleiga frá Neðri Hjarðardal og hét hún Glóra.
Minn gamli og góði vinur, Oddur Jónsson, bóndi á bænum Gili sagði að eftir að nafninu var breytt úr Glóru í Gil hafi búskapur á jörðinni verið alveg glórulaus !!!
Til er saga af Oddi bónda, hún er góð og þar með sönn samkvæmt skilgreiningu Hallgríms Sveinssonar á Þingeyri og Brekku forvígismanns Vestfirska forlagsins.
Sagt er að þegar Oddur reif af dagatalinu hafi hann ort vísu í hvert sinn , skrifað aftan á dagatalsmiðann og geymt í borðskúffu. Varð smám saman til all nokkurt vísnasafn. Þegar Oddur bjóst til mannfagnaðar í sveitinni á hann að hafa tekið handfylli úr skúffunni góðu og stungið í vasa sinn. Síðan voru miðarnir veiddir upp úr vasnum þegar við átti og vísurnar, lesnar sveitungunum á samkomunni til ánægju
Þannig skemmtu menn hver öðrum í gamla daga og þágu ekki stórfé fyrir.
Oddur var gamansamur maður og ágætur félagi. Honum er alveg trúandi til að hafa gert þetta !!!!
Emil Ragnar Hjartarson
f.v. skólastjóri á Flateyri.